112036 1
112036 2
112036 4
112036 3
112036 5
112036 6
112036 7
112036 8
112036 9
112036 10
112036 11
112036 13
112036 12
112036 1
112036 2
112036 4
112036 3
112036 5
112036 6
112036 7
112036 8
112036 9
112036 10
112036 11
112036 13
112036 12
Upplýsingar um vöru

Glæsileg hönnun

Þessi kæli- og frystiskápur er virkilega skemmtilegur og fullkominn í eldhúsið! Fáguð hönnun með utanáliggjandi skjá og fallegar höldur.

Vel skipulagt innvols

Kæli- og frystiskápurinn frá Elvita er 200 cm hár og er í orkuflokki A++. Orkusparandi LED-ljós efst í skápnum hjálpar þér að sjá hvað er í hverri hillu. Kælirinn er einnig með þrjár glerhillur og ávaxta- og grænmetisskúffu með loki. Þá er einnig sérstakt Colling Plus kælihólf þar sem kjöt, fiskur og aðrar ferskvörur geymast best. Flöskur og fernur komast fyrir í fjórum hillum í hurðinni, en kælirinn er einnig með sérstaka flöskugrind. Frystirinn rúmar 89 lítra og er með þrjár gagnsæjar skúffur. Undir efstu og miðju skúffunni eru svo færanlegir bakkar sem má nota sem hillur. Viðhaldsfrítt kælikerfið er einnig útbúið með sjálfvirkri afþíðingu.

Hægt er að velja hvort hurð opnist til vinstri eða hægri, eins og hentar þínu eldhúsi. Smá ráð! Stilltu upp tveimur eins skápum hlið við hlið til að fá enn stærra og betra geymslupláss.

Stjórnaðu stillingunum

Þú getur stjórnað stillingunum eins og þér hentar á utanáliggjandi skjá á hurðinni.

Viðvaranir

Viðvörun hljómar ef hurðirnar eru skildar eftir opnar í meira en 2 mínútur.

Þessi skápur er með 5 ára ábyrgð frá Elvita.