CGS3740V_113988_01
113988 01
113988 03
CGS3740V_113988_01
113988 01
113988 03
Upplýsingar um vöru

70 cm breitt helluborð með steypujárnshellu

Elvita CGS3540V er 70 cm breið eldavél með steypujárnshellum og 400 Volta tengingu. Helluborðið er með þremur hellum með hraðsuðustillingu og einni venjulegri hellu. Ofninn er með tvöföldu grilli, stóru og litlu. Hægt er að stilla fæturnar og því getur eldavélin verið 85-94 cm há.

Öruggt og stöðugt

Eldavélin er með kæliviftu sem kælir ytra byrðið og stjórnborðið. Viftan fer í gang þegar kveikt er á ofninum.
Ofnhurðin er mjög stöðug og þolir allt að 20 kg þyngd án þess að ofninn velti fram fyrir sig. Ef hurðin er opnuð á meðan ofninn er í gangi þá smellir í rofa sem slekkur á ofnhitanum og viftunni. Ofninn og viftan fara aftur í gang þegar hurðinni er lokað.

Auðvelt að þrífa
Hægt er að fjarlægja takkana við helluborðið og þeir mega fara í uppþvottavél. Water Clean stillingin auðveldar þrif á ofninum. Snúðu takkanum á Water Clean og helltu 0,6 lítrum af vatni í ofnskúffu og settu neðst í ofninn. Svo eftir 30 mínútur er ekkert mál að strjúka óhreinindin af með rakri tusku. Einnig er hægt að fjarlægja hurðina til auðvelda þrif.

Aukahlutir
Með eldavélinni fylgja tvær ofnplötur, grillgrind og 7 cm djúp ofnskúffa. Auðvelt er að geyma þessa hluti í handhægri skúffu undir ofninum. Eldavélin er með norrænum grunni að aftan, sem inniheldur perilex tengi og 1,5 m snúru.