CCS4540V 113979 01
113979 01
113979 02
CCS4540V 113979 01
113979 01
113979 02
Upplýsingar um vöru

Nett eldavél með High-Light hellu

Elvita CCS4540V er 50 cm breið eldavél með High-Light hellu og 400 Volta tengingu. Rúmgóður 74 lítra ofn með stóru og litlu grilli. Hægt er að stilla fæturnar og því getur eldavélin verið 85-94 cm há.

Snögg High-Light hella

Svæðin hitna fljótt jafnvel þó að helluborðið sé ekki spanhelluborð. High-Light svæðin eru orkunýtin og afkastamikil og hitna hraðar en á hefðbundnum keramík helluborðum. Varmaleifavörn er til staðar fyrir þessi svæði svo þú brennir þig síður. Varmaleifarnar er svo hægt að nota til að halda heitu.

Öruggt og stöðugt

Kæliviftan kælir stjórnborð eldavélarinnar og ytra birgðið. Viftan fer í gang þegar kveikt er á ofninum. Ofninn er með stöðuga hurð. Það slökknar á ofninum og viftunni þegar ofnhurðin er opnuð en það fer aftur af stað þegar hurðinni er lokað aftur.

Auðvelt að þrífa

Hægt er að fjarlægja takkana við helluborðið og þeir mega fara í uppþvottavél. Water Clean stillingin auðveldar þrif á ofninum. Snúðu takkanum á Water Clean og helltu 0,6 lítrum af vatni í ofnskúffu og settu neðst í ofninn. Svo eftir 30 mínútur er ekkert mál að strjúka óhreinindin af með rakri tusku. Einnig er hægt að fjarlægja hurðina til auðvelda þrif.

Aukahlutir

Með eldavélinni fylgja tvær ofnplötur, grillgrind og 7 cm djúp ofnskúffa. Auðvelt er að geyma þessa hluti í handhægri skúffu undir ofninum. Eldavélin er með norrænum grunni að aftan, sem inniheldur perilex tengi og 1,5 m snúru.