Eldavél með High-Light og hraðvirkum blástursofni 70 lítra, CCS4523V
• 230 Volt
• Hraðvirkt Hight-Light helluborð
• Blástursofn, tvöfalt grill og Fast Preheat
• Einföld þrif með Water Clean
• Stillanleg hæð 85-94 cm
Hraðvirk eldavél með High-Light helluborði og blástursofni
Elvita CCS4623V er 60cm breið eldavél með High-Light helluborði, blástursofni og 230 Volta tengi. Stillanleg hæð frá 585-94cm.
Blástursofn með Fast Preheat
Blástursofn með tvöföldu grilli; stórt + lítið og rúmar 70 lítra. Hægt að elda mat á fjórum hæðum á sama tíma með blásturskerfi.
Þú ert enga stund að forhita ofninn með Fast Preheat, fer upp í allt að 200°C á 7 mínútum.
Fljótvirkt High-Light helluborð
Svæðin hitna hratt jafnvel þótt eldavélin hafi ekki spanhelluborð. High-Light svæðin eru skilvirk og nota minni orku ásamt því að hafa styttri kveikjutíma en hefðbundin keramikhelluborð. Hitavörn er á yfirborðnu svo að þú ættir ekki að brenna þig. Afgangshita er síðan hægt að nýta til þess að halda hita á matnum.
Öruggt og stöðugt
Kæliviftan kælir stjórnborðið og eldavélina að utan. Þegar ofninn er í gangi er kæliviftan tekin í notkun. Ofninn hefur stöðuga ofnhurð, þegar hurðin er opnuð meðan á eldunarferlinu stendur er viftan og ofnhitun óvirkjuð með rofa. Þegar hurðinni er lokað eru hitarinn virkjaður aftur með rofanum.
Auðveld þrif
Hnapparnir mega fara í uppþvottavél og auðvelt að taka þá af. Þökk sé Water Clean er auðvelt að þrífa ofninn. Þú getur snúið hnappnum að Water Clean og hellt 0,6 lítra af vatni í bökunarplötu og stungið henni inn í botninn á ofninum. Eftir 30 mínútur er auðvelt að þrífa ofninn með rökum klút af enamelhúðuðu ofnfletinum. Ofnhurðin er losanleg og einnig auðvelt að þrífa hana.
Aukahlutir
Eldavélinni fylgja tvær bökunarplötur, grillgrind og 7 cm djúp ofnplata. Þægilegt er að geyma þær í útdraganlegri skúffu undir eldavélinni. Eldavélin er afhent með norrænu tengi að aftan.
Kapall og innstunga fylgja ekki með.