Bi3849 Rgb Elvita Spis CCS4723V
113989 01
113990 03
Bi3849 Rgb Elvita Spis CCS4723V
113989 01
113990 03
Upplýsingar um vöru

Extra breið eldavél með High-Light helluborði og hraðvirkum blástursofni

Elvita CCS4723V er 70 cm breið eldavél með High-Light helluborði, blástursofni og 230V tengi. Stillanleg hæð frá 85-94.

Blástursofn með hrað-forhitun

Blástursofn með tvöföldu grilli; stórt + lítið og rúmar 70 lítra. Hægt að elda á fjórum hæðum á sama tíma með blásturskerfinu.

Þú ert enga stund að forhita ofninn með Fast Preheat stillingu, nær upp í allt að 200°C á 7 mínútum.

Fljótvirkt High-Light helluborð

Svæðin hitna hratt jafnvel þótt eldavélin hafi ekki spanhelluborð. High-Light svæðin eru skilvirk og nota minni orku ásamt því að hafa styttri kveikjutíma en hefðbundin keramikhelluborð. Hitavörn er á yfirborðnu svo að þú ættir ekki að brenna þig. Afgangshita er síðan hægt að nýta til þess að halda hita á matnum.

Öruggt og stöðugt

Kæliviftan kælir stjórnborðið og eldavélina að utan. Þegar ofninn er í gangi er kæliviftan tekin í notkun. Ofninn hefur stöðuga ofnhurð, þegar hurðin er opnuð meðan á eldunarferlinu stendur er viftan og ofnhitun óvirkjuð með rofa. Þegar hurðinni er lokað eru hitarinn virkjaður aftur með rofanum.

Auðveld þrif

Hnapparnir mega fara í uppþvottavél og auðvelt að taka þá af. Þökk sé Water Clean er auðvelt að þrífa ofninn. Þú getur snúið hnappnum að Water Clean og hellt 0,6 lítra af vatni í bökunarplötu og stungið henni inn í botninn á ofninum. Eftir 30 mínútur er auðvelt að þrífa ofninn með rökum klút af enamelhúðuðu ofnfletinum. Ofnhurðin er losanleg og einnig auðvelt að þrífa hana.

Aukahlutir

Eldavélinni fylgja tvær bökunarplötur, grillgrind og 7 cm djúp ofnplata. Þægilegt er að geyma þær í útdraganlegri skúffu undir eldavélinni. Eldavélin er afhent með norrænu tengi að aftan.

 Kapall og innstunga fylgja ekki með.