Nettur kæli- og frystiskápur með 219 lítra kæli og 89 lítra frysti, CKF5188V
• Orkuflokkur A++
• 188 cm
• Rúmtak kælis: 219 lítrar
• Rúmtak frystis: 89 lítrar
• Hægt að velja hvort hurð opnist til vinstri eða hægri
Stílhrein hönnun
Þessi kæli- og frystiskápur er virkilega skemmtilegur og fullkominn í eldhúsið! Fáguð hönnun sem inniheldur utanáliggjandi skjá og fallegar höldur.
Vel skipulagt innvols
Kæli- og frystiskápurinn frá Elvita er 188 cm hár og er í orkuflokki A++. Orkusparandi LED-ljós efst í skápnum hjálpar þér að sjá hvað er í hverri hillu. Kælirinn er einnig með þrjár glerhillur og ávaxta- og grænmetisskúffu og Colling Plus kælihólf þar sem kjöt, fiskur og aðrar ferskvörur geymast best. Flöskur og fernur komast fyrir í fjórum hillum í hurðinni, en kælirinn er einnig með sérstaka flöskugrind. Frystirinn rúmar 89 lítra og er með þrjár gagnsæjar skúffur. Undir efstu og miðju skúffunni eru svo færanlegir bakkar sem má nota sem hillur. Viðhaldsfrítt kælikerfið er einnig útbúið með sjálfvirkri afþíðingu.
Hægt er að velja hvort hurð opnist til vinstri eða hægri, eins og hentar þínu eldhúsi. Smá ráð! Stilltu upp tveimur eins skápum hlið við hlið til að fá enn stærra og betra geymslupláss.
Stjórnaðu stillingunum
Þú getur stjórnað stillingunum eins og þér hentar á utanáliggjandi skjá á hurðinni.
Orkusparandi fjarverustilling
Orkusparandi stilling takmarkar orkunotkun ef þú ert lengi í burtu. Hitastigið í kælinum er stillt á 6°C og hitastig frystisins er stillt á -17°C.
Viðvaranir
Viðvörun hljómar ef hurðirnar eru skildar eftir opnar í meira en 2 mínútur.
Þessi skápur er með 5 ára ábyrgð frá Elvita.